Glamour

Fyrstu Chanel úrin fyrir karlmenn

Ritstjórn skrifar
skjáskot/chanel
Franska tískuhúsið Chanel hefur verið þekkt fyrir margt annað en úraframleiðslu hingað til en nú er öldin önnur. Chanel frumsýndi nýlega nýtt úr fyrir karlmenn sem að sjálfsögðu ber heitið „Monsieur“. 

Um er að ræða úr sem er framleidd af þeim sjálfum í verksmiðju þeirra í Sviss og tók um fimm ár í þróun og framleiðslu. Úrin eru með leðuról og skífan úr hvíta-eða rósagulli. 

Úrið kostar skildingin en er á bilinu 4- 4 og hálfa milljón króna og kemur í verslanir í sumar. 

Miðað við hvernig franska tískuhúsið tjaldar þessu til er mjög líklega að dömurnar fái sína úralínu með svipuðu sniði áður en langt um líður. 






×