Bílar

Fyrsti Tivoli XLV afhentur

Finnur Thorlacius skrifar
Benedikt Eyjólfsson hjá Bílabúð Benna afhenti hjónunum Margréti Högnadóttir og Ríkarð Óskarssyni Snædal fyrsta Tivoli XLV sportjeppann fyrir skömmu.
Benedikt Eyjólfsson hjá Bílabúð Benna afhenti hjónunum Margréti Högnadóttir og Ríkarð Óskarssyni Snædal fyrsta Tivoli XLV sportjeppann fyrir skömmu.
Tivoli XLV, nýjasti sportjeppinn frá SsangYong, var frumsýndur hjá Bílabúð Benna nú á dögunum og vakti hann mikla athygli. Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að fjöldi manns hafi tekið hann til kostanna að undanförnu og margar fjölskyldur sett hann á óskalista sinn í kjölfarið, enda sé leitun að eins vel búnum sportjeppa á jafn góðu verði.

Þá kemur fram að afhending á fyrsta Tivoli XLV sportjeppanum hafi átt sér stað fyrir skömmu og ljóst sé af framansögðu að margir eiga eftir að sigla í kjölfarið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×