Innlent

Fyrsti þáttur Víglínunnar í beinni útsendingu

Nú í hádeginu klukkan 12:20 hefst Víglínan, nýr þjóðmálaþáttur á vegum fréttastofu Stöðvar 2, í opinni dagskrá á Stöð 2 og beinni útsendingu á Vísi í umsjón Heimis Más Péturssonar fréttamanns. Í þessum þáttum verður fjallað um allt það helsta sem í þjóðmálaumræðunni hverju sinni.

Í fyrri hluta þáttarins í dag verður farið yfir stjórnarmyndunarviðræðurnar sem staðið hafa yfir frá því Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, fékk stjórnarmyndunarumboðið hjá forseta Íslands á mánudag. Fyrsti gestur þáttarins er Logi Már Einarsson sem fyrir tilviljun örlaganna varð formaður Samfylkingarinnar, minnsta þingflokksins á Alþingi. Framtíð flokksins er í óvissu og spurning hvernig nýr formaður hyggst beita sér fyrir framhaldslífi flokksins.

Þrátt fyrir að vel ári í flestum kennitölum vinnumarkaðarins ólgar undir niðri og allir kjarasamningar gætu komist í uppnám upp úr áramótum. Fyrir liggur að ná samkomulagi um jöfnun lífeyrisréttinda og nú síðast skvetti kjararáð olíu á eldinn með ákvörðun um tugi prósenta launahækkun til alþingismanna, ráðherra og forseta Íslands. Inni í þetta allt blandast svokallað SALEK-samkomulag sem snertir allt vinnandi fólk í landinu, en fæstir vita kannski hvað felur í sér.

Til að ræða þessi mál mæta Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, og Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, í Víglínuna. En þau fara fyrir tveimur fjölmennustu samtökum á vinnumarkaði.

Víglínan er sem fyrr segir í opinni dagskrá á Stöð 2 og beinni útsendingu á Vísi, sem hefst klukkan 12:20.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×