Lífið

Fyrsti sushi-vagninn á Íslandi

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Sushi vagninn opnar í Mæðragarði í dag.
Sushi vagninn opnar í Mæðragarði í dag.
„Þetta er allavega fyrsti svona vagninn sem ég veit um hér á landi og við erum mjög spennt,“ segir Hulda Björg Jónsdóttir. Hún opnar í dag ásamt sambýlismanni sínum, Arnþóri Stefánssyni, fyrsta sushi-vagn landsins og ber hann nafnið Shirokuma Sushi.

Þau vilja gera sushi aðgengilegra fyrir fólk og vilja breyta markaðnum. „Við höfum gengið með þessa hugmynd í einhvern tíma en í haust fórum við að spá í þessu af einhverju viti. Okkur langar að sprengja upp markaðinn með okkar frábæra verði, við viljum að fólki geti fengið sér sushi oftar en bara á hátíðisdögunum, því þetta hefur verið svo dýrt hérna,“ útskýrir Hulda Björg.

Á bak við sushi-ið standa Arnþór, sambýlismaður Huldu, og Lúðvík Þór Leósson, en þeir eru þaulreyndir í sushi-gerð. Arnþór er menntaður matreiðslumaður frá Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi, ásamt því að hafa starfað á fjölda virtra veitingastaða hérlendis eins og t.d. Vox, Turninum 19. hæð, Suzushii, Sushisamba og Sushibarnum. Lúðvík hefur starfað við sushi-gerð frá árinu 2010 á Suzushii, Sushibarnum/Sakebarnum. Þeir félagar sáu um að reka Suzushii í Kringlunni árin 2011-2015.

Shirokuma Sushi-vagninn verður opnaður í Mæðragarði við Lækjargötu í dag en þess má til gamans geta shirokuma þýðir ísbjörn á japönsku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×