Lífið

Fyrrverandi ráðherra í íbúðaskiptum

Katrín Júlíusdóttir.
Katrín Júlíusdóttir.
Æ vinsælla er meðal Íslendinga að finna fjölskyldur erlendis og skipta við þær á íbúðum. Með því sparast fjármagn sem annars færi í gistingu á ferðalögum erlendis. Fjöldi Íslendinga stundar þessa iðju hvert sumar. Þetta er einkar gott fyrir einstaklinga sem hafa gaman af því að skipuleggja sumarfríin sín langt fram í tímann.

Katrín Júlíusdóttir, fyrrverandi ráðherra og varaformaður Samfylkingarinnar, hefur nú þegar ákveðið að fara í tvær slíkar ferðir næsta sumar. Skiptir hún á íbúð næsta sumar við hjón frá Prag annars vegar og hjón frá Ljublana hins vegar. Það er ekki ráð nema í tíma sé tekið enda ráðherrann fyrrverandi annálaður fyrir skipulagshæfileikana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×