Lífið

Fyrrum tengdasonur Íslands kominn með nýja

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Chris Pine og Zoe Kravitz saman á góðri stund.
Chris Pine og Zoe Kravitz saman á góðri stund. vísir/getty
Star Trek-leikarinn Chris Pine, sem áður var í sambandi með hinni íslensku Írisi Björk Jóhannesdóttur, hefur undanfarið sést með Zoe Kravitz, dóttur rokkarans Lenny Kravitz. Sáust þau yfirgefa Óskarsverðlaunapartí saman á sunnudag.

Heimildarmaður nákominn þeim sagði þau aðeins vera góða vini og að þau hefðu þekkst í mörg ár. Orðrómur um að þau hefðu fellt hugi saman byrjaði síðastliðið haust þegar til þeirra sást saman á tónleikum með hljómsveitinni Coldplay. Áður var Kravitz í sambandi með Gossip Girl-leikaranum Penn Badgley.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×