Innlent

Fylgi reglum um öryggisbelti

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Það er skylda fyrir alla aldurshópa að nota bílbelti í hópferðabifreiðum.
Það er skylda fyrir alla aldurshópa að nota bílbelti í hópferðabifreiðum. vísir/stefán
Allir fylgdu gildandi reglum um notkun öryggisbelta í nýlegri könnun lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við lögregluna á Suðurnesjum um öryggisbeltanotkun.

Í tilkynningu frá lögreglunni segir að skylda sé fyrir alla aldurshópa að nota bílbelti í hópferðabifreiðum, séu þau til staðar.

Í könnuninni voru bifreiðarnar stöðvaðar á meginleiðum út frá höfuðborgarsvæðinu. Rætt var bæði við ökumenn og farþega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×