Lífið

Fullkomin endurkoma Phil Collins hjá Jimmy Fallon

Stefán Árni Pálsson skrifar
Collins kom, sá og sigraði í þættin Jimmy Fallon.
Collins kom, sá og sigraði í þættin Jimmy Fallon.
Phil Collins kom fram í spjallþætti Jimmy Fallon, The Tonight Show, í vikunni og flutti hann lagið In the Air Tonight sem hann gerði garðinn frægan með á sínum tíma.

Collins hefur ekki komið fram í ein sex ár en um þessar mundir er hann að gefa út þrefalda safnplötu ásamt ævisögu sinni. Hann er því mættur aftur í sviðsljósið og fagna því eflaust margir.

Phil Collins á milljónir aðdáenda um heim allan. Hann var bæði trymbill og söngvari sveitarinnar Genesis og fór síðar að einbeita sér að sólóferli sínum.

Hér að neðan má flutning Collins hjá Fallon.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×