Tónlist

Frumsýning á Vísi: Fyrrverandi leikur lík sem er dömpað út í sjó

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Tónlistarkonan Heiða Dóra Jónsdóttir, sem er þekkt undir listamannsnafninu Bara Heiða, frumsýnir á Vísi myndband við lagið I got your back.

Lagið hefur vakið talsverða lukku á útvarpsstöðvum landsins og tók Heiða lagið í þættinum Loga á Stöð 2 á dögunum.

Myndbandið er gert af Create Everything en í því leikur Heiða á móti syni sínum.

„Fyrir lokaatriði myndbandsins fórum við út á Reykjanestanga. Þar var minn fyrrverandi svo elskulegur að leika lík í líkpoka sem er dömpað út í sjó í fallegu landslagi. Mig langaði að hafa kontrast í myndbandinu við það hvað lagið er saklaust og fallegt. Það heppnaðist vel að mínu mati. Þetta var æðislega skemmtilegt en það var mjög kalt, sérstaklega í lokin,“ segir Heiða um myndbandið sem horfa má á hér fyrir ofan.

Heiða hjá Loga með Loga sjálfum og Jóni Gnarr.mynd/úr einkasafni





Fleiri fréttir

Sjá meira


×