Lífið

Frumsýndi óléttukúluna á Emmy

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikkonan Amanda Peet á von á sínu þriðja barni með eiginmanni sínum, David Benioff. Amanda sýndi óléttukúluna á rauða dreglinum á Emmy-verðlaunahátíðinni nú fyrir stundu en verðlaunin eru afhent í 66. sinn í Los Angeles í nótt.

Amanda og David eiga fyrir dæturnar Frances, sjö ára og Molly, fjögurra ára.

"Þær eru frekar spenntar. Þessi eldri er frekar spennt, þessi í miðjunni er ekki alveg viss," segir Amanda í samtali við tímaritið Us Weekly.

Amanda geislaði á rauða dreglinum í blómakjól frá meistara Giambattista Valli.

Hjónin.

Tengdar fréttir

Stórleikarar grínast fyrir Emmy-hátíðina

Leikkonan Julia Louis-Dreyfus slær heldur betur í gegn í nýjasta myndskeiði sem birt er til þess að vekja athygli á Emmy-hátíðinni sem styttist óðum í.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×