Lífið

Friends-leikkonur keppa í blóti

Bjarki Ármannsson skrifar
Hvor er orðljótari, Jennifer Aniston eða Lisa Kudrow?
Hvor er orðljótari, Jennifer Aniston eða Lisa Kudrow? Mynd/Skjáskot
Leikkonurnar Jennifer Aniston og Lisa Kudrow, sem eitt sinn léku saman í sjónvarpsþáttaröðinni Friends, tóku þátt í nokkuð óvenjulegum leik í spjallþætti Jimmy Kimmel á dögunum. Leikurinn heitir á ensku „Celebrity Curse-Off“ eða „blótkeppni fræga fólksins.“

Líkt og nafnið gefur til kynna, eiga keppendur að hreyta blótsyrðum og formælingum hvor í annan þar til annar stendur uppi sem sigurvegari. Ekki má nota sömu blótsyrðin tvisvar.

Viðureign leikkvennanna tveggja fór vel í viðstadda enda stóðu þær sig báðar með ágætum. Hér fyrir neðan er hægt að horfa á blótkeppni milli Jennifer Aniston og Lisa Kudrow.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×