Íslenski boltinn

Freyr fékk mjög gott tilboð frá Kína: „Peningar eru ekki allt“

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Freyr Alexandersson fór ekki til Kína heldur verður áfram með stelpurnar okkar.
Freyr Alexandersson fór ekki til Kína heldur verður áfram með stelpurnar okkar. vísir/valli
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, er búinn að framlengja samninginn sinn um tvö ár eins og kom fram fyrr í dag. Freyr verður því áfram með landsliðið eftir Evrópumótið í Hollandi á næsta ári.

Breiðhyltingurinn, sem tók við liðinu fyrir þremur árum, íhugaði  að segja starfi sínu lausu eftir Evrópumótið og róa á önnur mið en eftir að hugsa mikið um málið ákvað hann að vera áfram.

„Sú hugsun var klárlega búin að vera í kollinum á mér. Ég var búinn að flakka með þetta í höfðinu fram og til baka. Sú staða hefði alveg getað komið upp að ég myndi hætta eftir EM. En það er ýmislegt sem kallar á mig bæði persónulega og út frá því hvernig gengur hjá mér og liðinu,“ segir Freyr í samtali við Vísi.

„Ég hef trú á því að við munum eiga gott Evrópumót á næsta ári og svo langar mig að koma liðinu á HM 2019 sem er auðvitað í Frakklandi og þar er ég öllum hnútum kunnugur eftir sumarið,“ segir Freyr kíminn, en hann var í teymi íslenska karlalandsliðsins á EM í Frakklandi í sumar.

Freyr fagnar eftir að koma stelpunum okkar á EM.vísir/anton brink
Peningar eru ekki allt

Freyr segir að ein stærsta ástæða þess að hann skrifaði núna undir við KSÍ er áreiti erlendis frá en hann hefur fengið mikið af tilboðum. Hann biður sína leikmenn um fulla einbeitingu á verkefninu í Hollandi næsta sumar og vill því gera slíkt hið sama og loka á allt sem gæti truflað hann.

„Það er búið að vera nokkuð áreiti að utan og ég vil loka á það. Ég er að biðja leikmenn um að skuldbinda sig þannig ég vil sjálfur læsa mig niður og hætta öllum vangaveltum. Ég vil setja fordæmi fyrir stelpurnar og vera heill gagnvart þeim því öll erum við saman í þessu,“ segir Freyr.

Þessi 34 ára gamli þjálfari hefur fengið tilboð úr ýmsum áttum, bæði að þjálfa félagslið karla og kvenna og einnig frá akademíum á Norðurlöndum. Eitt tilboð þurfti hann þó að hugsa mjög vel því það hefði getað breytt lífi hans.

„Ég fékk tilboð frá Kína og það fékk mig til að hugsa málið. Það var eina starfið sem ég íhugaði alvarlega. Peningar eru ekki allt. Þetta starf hefði verið mjög gott fyrir mig fjárhagslega og mína fjölskyldu en ég fann bara að það hefði verið röng ákvörðun. Það var erfitt að hafna þessu tilboði en ég fann á sama tíma hvað þetta styrkti trú mína í því að ég er á réttum stað,“ segir Freyr Alexandersson.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×