Lífið

Fréttamyndir ársins 2014

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Valgarður Gíslason ljósmyndari var staddur í Kiev í Úkraínu mánuði eftir að fjöldamorð voru framin við torgið. Byltingarliðar úr röðum almennings vörðu torgið og fólk undirbjó sig fyrir áframhaldandi átök í borginni. Hér sést byltingarliði í hlutverki varðmanns.
Valgarður Gíslason ljósmyndari var staddur í Kiev í Úkraínu mánuði eftir að fjöldamorð voru framin við torgið. Byltingarliðar úr röðum almennings vörðu torgið og fólk undirbjó sig fyrir áframhaldandi átök í borginni. Hér sést byltingarliði í hlutverki varðmanns. vísir/valli
Árleg sýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands á bestu myndum ársins 2014 verður opnuð í dag í Gerðarsafni í Kópavogi. 

Á sýningunni eru 116 myndir sem valdar hafa verið af dómefnd úr 905 myndum. 24 blaðaljósmyndarar taka þátt í sýningunni og eru veitt verðlaun í níu flokkum. 

Við sama tækifæri verða Blaðamannaverðlaunin veitt í fjórum flokkum. Þá opnar á neðri hæð safnsins sýning á myndum Ragnars Th. Sigurðssonar, ljósmyndara og Norðurheimskautsfara, sem hann nefnir Ljósið. Ragnar hóf feril sinn sem fréttaljósmyndari árið 1975.

Hér má sjá myndir af sýningunni sem eru allar teknar af ljósmyndurum fréttastofu 365. 


Tólf hross drukknuðu í Bessastaðatjörn rétt fyrir jólin. Hátt í þrjátíu manns komu að aðgerðum við að hífa hrossin upp úr vökinni. Þyrla var notuð til að hífa hræin upp og var Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari staddur á vettvangi.vísir/vilhelm
Í einum af óveðursdögunum í desember síðastliðnum rakst Pjetur Sigurðsson ljósmyndari á þennan litla hvutta sem var frekar farinn að líkjast snjóbolta en hundi á gangi í Grafarvoginum.vísir/pjetur
Daníel Rúnarsson ljósmyndari festi á filmu fólskubrögð Ungverja í leik þeirra gegn íslenska landsliðinu í handbolta á Evrópumótinu í Álaborg. Hér sést Aron Pálmason í baráttunni gegn Ungverjum.vísir/daníel
St. Petersburg Festival Ballet sýndi Hnotubrjótinn í Hörpu við tónlist Tsjaíkovskís, sem leikin var af Sinfóníuhljómsveit Íslands. Ernir Eyjólfsson ljósmyndari tók þessa mynd af samstarfinu á æfingu daginn fyrir frumsýningu.vísir/ernir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×