Innlent

Frestur til formannsframboðs rennur út á morgun

Heimir Már Pétursson skrifar
Frestur til að skila inn framboðum til embættis formanns Samfylkingarinnar rennur út á hádegi á morgun sem og frestur til að ganga í flokkinn vilji með taka þátt í formannskjörinu. Tveir frambjóðendur hafa nú þegar skilað inn framboðum sínum.

Fimm hafa tilkynnt opinberlega að þau sækist eftir embætti formanns Samfylkingarinnar sem kosið verður til í almennri kosningu innan flokksins fyrir landsfund hans sem hefst hinn 3. júní. Það eru þau Árni Páll Árnason núverandi formaður, Oddný G. Harðardóttir þingmaður, Helgi Hjörvar þingflokksformaður, Magnús Orri Schram varaþingmaður og Guðmundur Ari Sigurjónsson bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi. Kristján Guy Burgess framkvæmdastjóri flokksins segir formleg framboð þegar hafa borist skrifstofu flokksins.

„Það hafa tvö framboð borist nú þegar. Frá Oddnýu G. Harðardóttur og Helga Hjörvar. Aðrir hafa til hádegis á morgun til að skila inn framboðum. Það þarf að afhenda undirskriftir tuttugu félagsmanna í hverju kjördæmi. Samtals hundrað og tuttugu,“ segir Kristján Guy. Kosningin sjálf hefjist síðan 28. maí og standi til hádegis hinn 3. júní.

En það er fyrri dagur þessa landsfundar sem boðað var til áður en lög flokksins gerðu ráð fyrir næsta reglulega landsfundi sem átti ekki að vera fyrr en snemma á næsta ári, sem undir venjulegum kringumstæðum hefði átt að vera kosningaár til Alþingis. En ríkisstjórnin ákvað eins og flestum er kunnugt að flýta kosningum fram á næsta haust.

Allir skráðir félagsmenn í Samfylkingunni kjósa næsta formann.

„Samfylkingin er eini stjórnmálaflokkurinn þar sem allir félagsmenn  geta valið formann í allsherjar atkvæðagreiðslu. Þannig að það eru allir félagsmenn í flokknum þegar kjörskrá lokar,“ segir Kristján Guy. En kjörskrá verður lokað á hádegi á morgun.

Uppfært klukkan 16:16

Árni Páll Árnason hefur ákveðið að draga framboð sitt til baka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×