Innlent

Francisca fær nýja tölvu frá Tölvulistanum

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
„Það er mikill vilji til þess úti um allt að gleðja þessa konu jafn mikið og hún gleður viðskiptavini sína,“ segir Gunnar Jónsson, markaðsstjóri Tölvulistans, sagði í samtali við Vísi.

Tölvulistinn hefur ákveðið að gefa Franciscu nýja fartölvu en Alda Sigmundsdóttir setti í gær af stað leit að tölvu fyrir Franciscu, sem vinnur á afgreiðslukassanum í Bónus á Granda, til að hún geti verið í sambandi við fjölskyldu sína í Sambíu.

„Við ákváðum að gera þetta af því okkur finnst hressandi þegar athyglin beinist að verslunarstarfsmönnum sem eru brosmildir og jákvæðir og hafa sömu áhrif á fólk í sínu starfi,“ sagði Gunnar.

Francisca fær nýja Toshiba fartölvu með góðri vefmyndavél og Gunnar segir fólk einnig vera að hafa samband við fyrirtækið til að afhenda þeim notaðar tölvur til að gera upp og gefa Franciscu.

„Við ætlum að útvega henni fjórar tölvur til að senda út fyrir alla fjölskylda og erum að uppfæra þær núna. Við viljum hjálpa henni að komast í samband við sitt fólk og erum í góðri aðstöðu til þess með okkar úrval og þjónustu,“ segir Gunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×