Innlent

Framkvæmdir hafnar við Ásmundarsal

Benedikt Bóas skrifar
Ásmundur Sveinsson myndhöggvari lét reisa húsið sem mun nú fá andlitslyftingu.
Ásmundur Sveinsson myndhöggvari lét reisa húsið sem mun nú fá andlitslyftingu. vísir/stefán
Viðhaldsvinna og uppbygging á Ásmundarsal við Freyjugötu 41 er hafin. Áætlað er að húsið verði formlega opnað vorið 2018. Það er arkitektastofan Kurtogpí sem mun hafa umsjón með endurbótum á húsinu.

Fjárfestarnir og hjónin Sigurbjörn Þorkelsson og Aðalheiður Magnúsdóttir keyptu húsið og borguðu fyrir það 168 milljónir. Áður var Listasafn ASÍ með starfsemi þar í um árabil.

„Okkur langar til að það verði líf í húsinu á meðan á framkvæmdum stendur og kynnum því til leiks Ásmundarsal í endurnýjun,“ segir Aðalheiður.  „Við stefnum að því að vera með uppákomur og sýningar í húsinu. Eins verður hægt að koma hér við. Fólk getur þá fylgst með framkvæmdum og upplifað eitthvað skemmtilegt á sama tíma. Sýningargestir gætu þurft að vera með öryggishjálma á næstu mánuðum,“ segir hún og hlær.

Fyrstu sýningar undir þessum formerkjum verða opnaðar á HönnunarMars, á fimmtudag. Annars vegar er sýningin CECI NES'T PAS UN MEUBLE þar sem 12 myndlistamenn taka þátt í sameiginlegu verkefni. Hver og einn breytti sama húsgagninu í myndverk. Þessi viðburður er á vegum vefsíðunnar Islanders en bryddað verður upp á þeirri nýjung að uppboð á verkunum fer fram á vefsíðunni þar sem fólki er gert kleift að bjóða í öll verkin.

Hins vegar er sýningin GAIA by Gulla for Saga Kakala. Gulla Jónsdóttir, arkitekt í Los Angeles, kynnir þá silkislæðu- og kasmírtreflalínuna Gaia. Einnig verður á sýningunni myndbandsinnsetning sem fjallar um innblástur að línunni sem er fenginn úr íslenskri náttúru og má finna í teikningum, arkitektúr og húsgagnahönnun Gullu. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×