Fótbolti

Framherji Real Madrid gefur út sitt fyrsta lag | Myndband

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Jese og Ronaldo á góðri stundu.
Jese og Ronaldo á góðri stundu. Vísir/getty
Jese Rodriguez, leikmaður Real Madrid, nýtti sumarfríið til þess að vinna í og gefa út sitt fyrsta tónlistarmyndband sem tónlistarmaðurinn Jey M en þetta er fyrsta lag hans.

Jese sem er 23 árs gamall hefur verið í herbúðum Real Madrid allt frá fjórtán ára aldri en hann hefur leikið alls 94 leiki fyrir spænska stórveldið.

Jese var ekki valinn í spænska landsliðið í sumar eftir 38 leiki með Real Madrid í öllum keppnum á síðasta tímabili en hann virðist hafa nýtt sumarið vel.

Jese fær aðstoð frá Alexis, Fido, De La Ghetto og Carlitos í laginu en myndbandið má sjá hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×