Lífið

Frægir á stefnumótasíðu Tinder

Ellý Ármanns skrifar
myndir/tinder
Snjallsímaforritið Tinder hefur slegið í gegn hjá einhleypum Íslendingum í leit að ástinni. Fjöldi frægra einstaklinga eru skráðir á þetta bráðsniðuga stefnumótaforrit sem er einfalt og ókeypis fyrir notendur.

Tinder gengur út á að notendur flakka á milli prófílmynda af því kyni sem þeir kjósa að kynnast nánar. Þar geta einhleypir spjallað saman ef þeim líkar við hvorn annan og hver veit nema ástin kvikni í kjölfarið.

Má þar nefna þekkta einstaklinga eins og Sölva Tryggvason fjömiðlamann, Ívar Guðmundsson útvarpsmann, Pétur Örn Guðmunsson söngvara, Svein Andra Sveinsson lögmann, Þóri Sæmundsson leikara, Sigurð Eggertsson handboltakappa og Kristinn Hrafnsson fjölmiðlamann sem eru skráðir á Tinder.

Sveinn Andri Sveinsson.
Ívar Guðmundsson.
Sölvi Tryggvason.
Þórir Sæmundsson.
Sigurður Eggertsson.
Pétur Guðmundsson.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×