Innlent

Fötlun íbúa skiptir ekki máli

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Veittar voru upplýsingar fyrir fund íbúa í Seljahverfi um að ekki yrði athvarf fyrir fíkniefnaneytendur í Rangárseli 16-20.
Veittar voru upplýsingar fyrir fund íbúa í Seljahverfi um að ekki yrði athvarf fyrir fíkniefnaneytendur í Rangárseli 16-20. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
 „Íbúar höfðu fengið upplýsingar fyrir fund þeirra að í íbúðakjarnanum að Rangárseli 16-20 yrði ekki athvarf fyrir fíkniefnaneytendur. Þær upplýsingar var ég búin að veita í gegnum vef íbúanna. Þeir fengu jafnframt upplýsingar um það á fundinum að fíkniefnaneytendur væru ekki markhópurinn.“

Þetta segir Björk Vilhelmsdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar, sem sat fund íbúa í Seljahverfi í Seljakirkju í vikunni ásamt fleiri borgarfulltrúum. Íbúarnir boðuðu til fundarins til þess að ræða hvers eðlis starfsemin yrði á vegum yfirvalda í kjarnanum.

„Ég kom þangað til að hlusta en ákvað að taka slaginn til að tryggja rétt fólks til heimilis í samfélagi við aðra. Þarna eru fimm íbúðir sem ætlaðar eru fólki sem þarf talsverða þjónustu. Þrátt fyrir upplýsingar sem íbúar höfðu fengið voru þeir búnir að álykta að þarna yrði fólk með ógnandi hegðun og í fíkniefnaneyslu. Það var fyrirfram búið að mótmæla veru þessa fólks. Starfsmaður kjarnans hafði á orði að það væri aldrei hægt að koma í veg fyrir að fólk neytti fíkniefna, hvorki þarna né annars staðar,“ segir Björk sem reiddist á fundinum.

Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, kveðst í færslu á Facebook ekki taka undir með þeim sem gagnrýnt hafi fundarhaldið enda mikilvægt fyrir borgarfulltrúa að fá að heyra sjónarmið íbúa milliliðalaust í svo viðkvæmu máli. Hann bendir á eftirfarandi fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokks á fundi borgarráðs:

„Um árabil hefur verið rekinn íbúðakjarni fyrir fatlað fólk að Rangárseli 16-20 í góðri sátt við íbúa hverfisins. Nú standa yfir breytingar á fyrirkomulagi í húsinu og er meðal annars gert ráð fyrir breytingum á íbúahópi þess. Óskað er eftir upplýsingum um þessar breytingar og hvort þær áhyggjur íbúa hverfisins sem fram komu á opnum íbúafundi í Seljakirkju 20. maí síðastliðinn, hvort þarna verði íbúar sem með einhverjum hætti geti talist ógn við umhverfi sitt, eigi við rök að styðjast.“

Björk segist aldrei hafa mótmælt fundinum. Fólki eigi auðvitað rétt á að fá upplýsingar og sjálfsagt sé að halda fund.

„Ég mótmælti hins vegar að kirkjan skyldi notuð í þessum tilgangi þegar svo virtist vera sem gefnar upplýsingar skiptu ekki máli, heldur að tala niður íbúana. Það skiptir ekki máli hvaða fötlun eða veikindi hrjá fólk þarna frekar en annars staðar. Ef svo er getum við farið að gefa út sjúkdómsgreiningar eftir heimilisföngum fólks,“ segir Björk.

Haft hefur verið eftir nágrönnum að heimsóknir lögreglu að íbúðakjarnanum hafi verið tíðar. Óskar Dýrmundur Ólafsson hverfisstjóri segir slíkt undantekningatilvik. „Ég hef heimildir fyrir því að útköll þarna séu ekki fleiri en í öðrum hverfum í Reykjavík.“

Í bréfi frá velferðarsviði til yfirmanns á lögreglustöðinni í Kópavogi, sem einnig sinnir Breiðholti, er nefndur mögulegur fíkniefnavandi íbúa, að því er DV greinir frá. „Bréfið var sent til upplýsinga um hver aðkoman að húsinu væri,“ segir Stefán.

Um mögulegan fíkniefnavanda segir hann: „Það er enginn íbúi sem er þarna núna í þeirri stöðu. Markhópurinn er ekki fíkniefnaneytendur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×