Lífið

Fóru með lítil hlutverk í Beverly Hills 90210 en urðu síðar heimsfræg

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þessi léku öll í Beverly Hills 90210.
Þessi léku öll í Beverly Hills 90210.
Bandarísku unglingaþættirnir Beverly Hills, 90210, slógu í gegn árið 1990 og voru þeir í sýningum í tíu ár eða til ársins 2000.

Aðal karakterarnir voru sex talsins en fjöldinn allur af aukaleikurum komu við sögu í þáttunum á þessum tíu árum.

Sumir þeirra áttu eftir að verða heimsfrægir og hefur vefsíðan Entertainment Weekly tekið saman ellefu dæmi um slíkt eins og sjá má hér en hér að neðan má sjá helstu dæmin.

AARON PAUL - Fór með lítið hlutverk í þáttunum árið 1999 þegar hann lék Chad. Paul sló síðar í gegn í þáttunum Breaking Bad.
ASHLEY TISDALE - Fékk lítið hlutverk í þáttunum árið 2000 en þá lék hún nemandann Nicole Loomis á balli. Í dag er hún fræg söngkona og leikkona.
LUCY LIU - lék í þætti árið 1991 en hún fór með hlutverk Courtney sem vann á kaffihúsinu Peach Pit í 2. seríu.
MATTHEW PERRY - Nokkrum árum áður en hann tók að sér hlutverk Chandler í Friends sást Perry í 90210 árið 1991 en hann lék Roger sem var mjög vinsæll nemandi í skólanum.
DENISE RICHARDS - Lék Robin McGill í þáttunum árið 1992.
EVA LONGORIA - Fyrsta hlutverk hennar í sjónvarpi var árið 2000 þegar hún lék flugfreyju í Beverly Hills 90210. Síðar landaði hún hluterki í vinsælu þáttunum Despirate Housewifes.
SETH GREEN - Lék Wayne í þáttunum árið 1993 en er í dag heimsfrægur leikari.
DAVID ARQUETTE - Kom fram í þáttunum árið 1992 og lék þá Dennis "Diesel" Stone sem var töffari í hljómsveit.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×