Innlent

Fóru illa út úr hruninu en unnu svo í lottó

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Vinningurinn er mikil lukka að sögn konunnar sem kom á skrifstofu Íslenskrar getspár í dag.
Vinningurinn er mikil lukka að sögn konunnar sem kom á skrifstofu Íslenskrar getspár í dag. Vísir/Valli
Einn vinningshafinn af fjórum, sem var með allar tölur réttar í lottóinu á laugardaginn, kom á skrifstofu Íslenskrar getspár í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá. Tveir vinningshafanna fjögurra frá því um liðna helgi hafa því vitjað vinningsins. Hver um sig fær 23,5 milljónir króna.

Bæði hún og maðurinn hennar höfðu keypt lottómiða og skrifaði hún tölurnar upp á meðan útdrátturinn var sýndur. Konan sagði síðan rólega við manninn sinn að þau væru með allar tölur réttar í lottóinu. Hann heyrði strax að henni var alvara.

Vinningurinn er mikil lukka að sögn konunnar þar sem þau hjónin fóru illa út úr hruninu. Þau ætla að þiggja fjárhagsráðgjöf sem stendur lottóvinningshöfum til boða, með tilliti til elliáranna.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×