Innlent

Formaður RSÍ segir rithöfunda sæta heiftúðugum árásum

Jakob Bjarnar skrifar
Stjórn RSÍ. Á félagsfundi var kvartað sáran undan ofsóknum fjölmiðla en jafnframt ályktað að leggja í upplýsingaferð.
Stjórn RSÍ. Á félagsfundi var kvartað sáran undan ofsóknum fjölmiðla en jafnframt ályktað að leggja í upplýsingaferð.
Formaður RSÍ kvartar sáran undan „fjölmiðlafári“ í bréfi til félagsmanna. Félagsfundur Rithöfundasambands Íslands samþykkti í gær að fara að tillögum starfshóps BÍL varðandi tilnefningar í úthlutunarnefnd starfslauna rithöfunda.

„Stjórn RSÍ skal velja uppstillingarnefnd samkvæmt  tillögum starfshóps BÍL. Uppstillingarnefndinni er svo falið að tilnefna einstaklinga í úthlutunarnefnd starfslauna rithöfunda.“

Þetta segir í bréfi formanns, Kristínar Helgu, til félagsmanna í Rithöfundasambandinu. Hún segir að með þessum breytingum eigi „tilnefningar til úthlutunarnefnda að vera hafnar yfir vafann.“

Kristín Helga greinir frá því að á fundinum hafi verið rætt „fjölmiðlafárviðri sem árlega skellur á vegna starfslauna til listamanna og þá sérstaklega hvernig rithöfundar verða fyrir heiftúðugum árásum, umfram aðra listamenn.“

Hér er væntanlega verið að vísa til frétta af því að stjórn RSÍ hefur hingað til valið fólk í úthlutunarnefndina, en öllum aðalmönnum í stjórn var síðast úthlutað ári í starfslaun. Kristín Helga situr við sinn keip sem fyrr en hún hefur áður vænt fjölmiðla um rangfærslur og óhróður.

Segir í bréfinu að fundarmenn hafi verið sammála um að seint yrði breyting á því en þó væri orðið brýnt að leggja í upplýsingaferð, miðla og fræða um ritlistina, gildi og vægi í menningarsamfélagi sem glímir við að viðhalda einu af smæstu tungumálum veraldar. „Sú upplýsingaveita er langhlaup sem leggjum í með okkar helstu samstarfsaðilum úr bókmenntaheiminum og það starf er þegar hafið. Upplýsing og samtal er enda eina leiðin til að efla menningarvitund fólks.“

RSÍ mun eftir sem áður beita sér fyrir því að fjölga starfslaunum því launasjóður rithöfunda sé alltof lítill og „löngu orðið tímabært að stækka hann og bæta við nýliðalaunum.“


Tengdar fréttir

Völdu nefndina sem úthlutaði þeim árslaunum

Stjórn Rithöfundasambandsins hlaut öll hámarksstyrk úr launasjóði listamanna. Stjórnin valdi sjálf úthlutunarnefndina. Formaðurinn segir stjórnina ekki hafa afskipti af störfum nefndarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×