Lífið

Fólkið á Airwaves: Norðurljósin, miðar á Björk, dansandi nammigrísir og íslenskur fiskur og franskar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Iceland Airwaves hófst formlega í gær og voru ógrynni tónleika í boði fyrir þá tugi þúsunda gesta sem eru mættir á þessa glæsilegu íslensku tónleikahátíð sem er nú haldin í 18. sinn.

Tómas Þór Þórðarson, fréttamaður, og Björn Sigurðsson (Böddi the great), kvikmyndatökumaður 365, fóru á stúfana í gærkvöldi og kíktu á stemninguna á fyrsta kvöldi hátíðarinnar.

Þeir fóru bæði í rigninguna fyrir utan Nasa þar sem Snorri Helgason, Tilbury og Moses Hightower voru að spila en þar fundu þeir eldri mann frá Þýskalandi sem ákvað að koma til Íslands og sjá íslenska tónlist.

Dizzy Rascal fór á kostum í Silfurbergi í Hörpu í gærkvöldi.Vísir/Andri Marinó
Mikil stemning var í Hörpu þar sem flottir rapptónleikar voru í boði. Reykjavíkurdætur stigu á stokk sem og Emmsjé Gauti og enski rapparinn Dizzy Rascal. Glowie og Axel Flóvent voru einnig vinsæl í Hörpu í gær.

Fréttateymi Vísis tók tónleikagesti tali en þarna var mætt fólk frá Ástralíu sem vildi sjá Norðurljósin og hlusta á íslenska tónlist, slóvakískar stelpur sem komust ekki inn á tónleikana sem þær langaði að sjá og eldri hjón frá Lúxemborg sem eru mætt til að sjá fallega náttúru landsins og hlusta á góða tónlist.

Björk er það sem flestir á Airwaves virðast vilja að sjá en erfitt var að fá miða á tónleika hennar. Ungir tvíburar héldu í smástund að þeir væru að vinna miða á tónleikana en svo var ekki.

Að lokum þurftu menn að næra sig fyrir svefninn og þá var um að gera að fá sér fisk og franskar.

Innslagið má sjá í spilaranum hér að ofan. Að neðan má sjá myndasyrpu frá Andra Marinó Karlssyni, ljósmyndara Vísis.


Tengdar fréttir

Biggi á Airwaves: „Pabbi, er Emmsjé Gauti mannæta?“

Við dóttir mín erum á þeytingi í gegnum rigninguna í Vesturbænum. Það er þegar orðið dimmt enda klukkan er að verða sex. Uppáhaldið okkar, Emmsjé Gauti, er við það að hefja fyrstu off venue tónleika sína á þessari Airwaveshátíð á Kaffi Vest.

Hárprúð Hjaltalín heillaði á fyrsta degi Airwaves

Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves hófst með látum í gær. Hljómsveitin Hjaltalín er ein af þeim sveitum sem troða upp utandagskrár á hátíðinni í ár, eða á því sem kallað er Off Venue, og hélt hún tónleika á Bryggjunni Brugghúsi úti á Granda í gærkvöldi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×