Innlent

Flutt hátt í þrjú tonn af rusli með þyrlu úr Fjörðum

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Með þyrlunni fékkst einnig nákvæm tala á þyngd ruslsins
Með þyrlunni fékkst einnig nákvæm tala á þyngd ruslsins Mynd/Jökull Bergmann
50 manna hópur sjálfboðaliða  gekk og hreinsaði fjörur eyðibyggðanna  í Fjörðum norðan Grenivíkur á Sjómannadaginn síðastliðinn.

Þyrluskíðafyrirtækið Arctic Heli Skiing skipulagði þennan viðburð í samvinnu við fjölda fyrirtækja og félagasamtaka við Eyjafjörð.

„Fjörður í Grýtubakkahreppi eru ein mesta náttúrperla landsins en þar kemst enginn um nema fuglinn fljúgandi á þessum árstíma nema þá af sjó,“ segir í tilkynningu frá Arctic Heli Skiing.





Ruslið flutt á brott.Mynd/Jökull Bergmann
Hvalaskoðunarfyrirtækið Arctic Sea Tours á Dalvík sigldi með um 40 sjálfboðaliða frá Grenivík  í Keflavík, Þorgeirs- og Hvalvatnsfjörð  þar sem Björgunarsveitin Ægir flutti fólk í land. Þyrla Norðuflugs flaug svo með 10 manna hóp í Kjálkanes á Látraströnd.

Hreinsunastörf gengu vel í blíðskaparveðri og var öllu rusli safnað í stórsekki sem síðan voru hífðir til byggða af þyrlunni. Mikið rusl hefur safnast saman í fjörum á svæðinu undanfarin ár eins og í flestum fjörum landsins.

Með þyrlunni fékkst einnig nákvæm tala á þyngd ruslsins sem vóg tvö og hálft tonn og var mikið umfangs. Í lok dags var svo slegið upp heljarinnar grillveislu um borð í hvalaskoðunarbátnum Mána í boði Kjarnafæðis og grillmeistaranna af Kontornum á Grenivík á meðan þreyttur en afskaplega glaður mannskapurinn sigldi aftur til byggða.

Mynd/Jökull Bergmann



Fleiri fréttir

Sjá meira


×