Flóttamannasprengjan - á ekki að ræða orsakirnar? Þórarinn Hjartarson skrifar 5. september 2015 11:39 Evrópa fær nú smjörþef af flóttamannavandanum. Fjölmiðlarnir ræða einkum hvernig stöðva megi strauminn, snúa honum við eða hvernig dreifa megi hælisleitendum um álfuna. Forðast hins vegar að tala um ORSAKIRNAR. Oft er gefið í skyn að þetta séu einkum efnahagslegir flóttamenn í leit að betri lífskjörum. Rangt. Langflestir flóttamenn nútímans flýja STRÍÐSÁSTAND. Skýrsla Flóttamannastofnunar SÞ um flóttamannastrauminn til Evrópu hefst svo: „Mikill meirihluti þeirra 130 þúsunda sem komu yfir Miðjarðarhaf til Evrópu sex fyrstu mánuði ársins 2015 flýja stríð, átök og ofsóknir.“ SÝRLAND er stærsta uppspretta flóttamanna á heimsvísu með 4 milljónir flóttamanna, og 7 milljónir á flótta innan landsins sjálfs. Ástæðan? Jú, stríðið sem geisað hefur í landinu frá 2011, stríð Vesturveldanna og helstu bandamanna þeirra í Miðausturlöndum gegn Sýrlandi. Áður en það hófst var einfaldlega enginn flóttamannastraumurfrá Sýrlandi. Stríðið hófst 2011 samhliða lokakafla Líbíustríðsins. Eins og í Líbíu hefur uppreisnin í Sýrlandi frá upphafi verið mönnuð af harðlínu-jíhadistum en studd, fjármögnuð og vopnuð af Vesturlöndum með bandamönnum, Persaflóaríkjunum, Tyrklandi ... Staðgengilsstríð. Árið 2012 viðurkenndu USA og ESB bandalag uppreisnarhópa sem réttmætan fulltrúa sýrlensku þjóðarinnar og beita sér fyrir „valdaskiptum“ í landinu. Sú afstaða var studd bæði af Össuri Skarphéðinssyni og Gunnari Braga Sveinssyni. Þetta er sem sagt okkar stríð. Næststærsta uppspretta flóttamanna í heiminum í dag er AFGAN ISTAN.Flóttamenn þaðan eru 2,5 milljónir. En Evrópa verður minna vör við þá af því þeir eru langmest í flóttamannabúðum í Pakistan og Íran. Ástæður flóttans? Stríð. Stríð sem rekið er af systkinunum USA og ESB allt frá 2001. Þið þekkið formúluna USA + ESB = NATO. Ísland hefur stutt þann stríðsrekstur frá upphafi undir vinstri jafnt sem hægri stjórnum. Okkar stríð. Svo koma aðrar stóruppsprettur flóttamannastraums í röðum, lönd í stríði. Nefnum nokkrar, ekki í réttri fjöldaröð, enda fjöldi mismunandi eftir því hvernig talið er. Óeðlilegt er að bera saman tölur um flóttamenn frá t.d. Líbíu með 6 milljóna þjóð og Bangladess með 160 milljónir. LÍBÍA. Talið er að um 2 milljónir hafi flúið Líbíu til Túnis á undanförnum árum, sem væri nærri þriðjungur íbúanna! Og nærri milljón sé þar nú. Um hálf miljón bíður í örvæntingu í Líbíu eftir að komast á manndrápsfleytum til Evrópu. Orsök? Stríð. „Uppreisnin“ í Líbíu 2011 var einkum mönnuð af jíhadistum en úrslitum réð lofthernaður NATO til stuðnings við jíhadistana. Bandaríkin, Frakkland og Bretland lögðu mest af mörkum en t.d. Danmörk og Noregur voru í forystu í byrjun lofthernaðarins. Stríðið eyðilagði Líbíu sem ríki. Stuðningur íslensku vinstristjórnarinnar við stríð NATO var fumlaus og án skilyrða. ÍRAK átti hálfa milljón flóttamanna í september í fyrra og þeim fer nú aftur fjölgandi með nýju stríði. Bandaríkin og Vesturlönd bera ábyrgð á hörmungum þess lands með Ísland í hópi „hinna viljugu“ í árásarstríðinu frá 2003. Með fyrirbærinu ISIS hafa Vesturveldin skapað sér yfirvarp til nýrra íhlutana í Írak. Okkar stríð. SÓMALÍA. Flóttamenn þaðan eru yfir ein milljón. Hungursneyðin og óöryggið í landinu eru mannanna verk. Ríkjandi hnattvæðingarstefna og AGS brutu niður matvælaframleiðslu í Sómalíu á 9. áratugnum. Hungursneyðin þar tengist að öðru leyti ófriði. Bandaríkin héldu þar úti „friðargæsluher“ á árunum 1993-94 og landið hefur auk þess mátt þola innrásir frá helstu bandamönnum Bandaríkjanna á svæðinu, Eþíópíu og Kenía. Síðustu árin hefur ófriðurinn tengst hernaði Al-Shahab, samtaka af meiði Al-Kaída, sem kostuð eru af Sádi-Arabíu og studd leynilega af vestrænum leyniþjónustum. Ógæfa Sómalíu er legan við mynni Rauða hafsins, sem er strategísk siglingaleið, meðal annars leiðin til og frá Persaflóa. JEMEN. Hinum megin Rauða hafsins er Jemen og býr við sömu ógæfu. Í lok júlí sl. hófst stríðið sem svar við byltingu í Jemen sem Sádi-Arabía og Bandaríkin voru bæði jafn ósátt við. Olíufurstarnir tóku að sér að sprengja landið í tætlur og „koma á stöðugleika“ þar! Tvö hundruð flugvéla floti heldur úti stöðugu sprengjuregni yfir borgir og bæi í Jemen. Sádi-Arabía hefur verið skjólstæðingur Bandaríkjanna í 70 ár. Reliefweb skrifar: „21,1 milljón manns í Jemen þarf neyðarhjálp strax. 1,3 milljónir eru á flótta innan lands, 3.800 dauðir og 18 þúsund særðir.“ Bandaríkin, Bretland og Ísrael styðja innrásina opið, aðrir, s.s. Ísland, samþykkja hana með þögninni.Flóttamannavandinn er birtingarmynd og afleiðing hernaðarútrásar vestrænnar heimsvaldastefnu. Sú útrás bætist við efnahagskerfi heimsvaldastefnunnar sem heldur þjóðum í fátækt og viðheldur misskiptingu auðs og valds. Og nú koma hrelldir og bjargarlausir þegnar fórnarlandanna og knýja dyra í heimsvaldalöndum, meðal annars Evrópu, og beiðast ásjár. Að fjalla um flóttamannavandann án þess að nefna orsakir hans er álíka fáránlegt og að ræða um fangabúðavandann í Evrópu 1939-45 án þess að nefna styrjöld eða nasisma. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir Skoðun Halldór 17.10.2026 Halldór Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir Skoðun Skoðun Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun