Innlent

Flóttamannabúðir gætu risið fyrir hælisleitendur sem koma hingað

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Björn Teitsson upplýsingafulltrúi Rauða krossins
Björn Teitsson upplýsingafulltrúi Rauða krossins
Nokkurs konar flóttamannabúðir gætu risið hér á landi ef stjórnvöld grípa ekki inn í.

Um síðustu mánaðamót voru 416 hælisleitendur hjá þjónustuaðilum Útlendingastofnunar og þá voru öll pláss full. Síðan þá hafa um eitt hundrað manns bæst í hópinn.

Útlendingastofnun skoðar að reisa gisti­skýli fyrir flóttamenn til að allir hafi þak yfir höfuðið. Fáist ekki leyfi kemur til greina að leita á náðir Rauða krossins.

„Það er neyðarástand á næsta leiti ef ekki verður gripið inn í,“ segir Björn Teitsson, upplýsingafulltrúi Rauða krossins.

„Rauði krossinn, sem hluti af almannavarnakerfi landsins, kæmi til með að opna fjöldahjálparstöð ef öll önnur úrræði bregðast,“ bætir Björn við.

Slík fjöldahjálparstöð yrði að hluta sambærileg þeim sem rísa í kjölfar náttúruhamfara eða aftakaveðurs. Sá munur er að stöð í þessu tilfelli þyrfti hækkað þjónustustig þar sem flóttamannastöðin er reist til lengri tíma en hin venjulega fjöldahjálparstöð.

„Það þyrfti lágmarksfjölda fermetra á hvern og einn, stöðuga viðveru starfsmanna, heilsugæslu, sálfræðilegan stuðning og félagsstarf,“ segir Björn.

Að sögn Björns hafa málefni hælisleitenda haft tilhneigingu til þess að stranda í hægagangi kerfisins. Rauði krossinn sé alltaf reiðubúinn og muni ekki skorast undan þessari samfélagslegu ábyrgð ef til félagsins verði leitað. Til þess þurfi hins vegar ekki að koma.

„Húsnæðið er til hvort sem þau úrræði eru á hendi ríkisins, sveitarfélaga eða einkaaðila,“ segir Björn. „Það sem vantar er pólitískur vilji til að koma í veg fyrir þetta ástand og sem samfélag ættum við að geta gert miklu betur í þessum málum en hefur verið hingað til.“

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×