Bílar

Flóðin í Þýskalandi stöðva bílaframleiðslu Audi

Finnur Thorlacius skrifar
Mikið tjón varð af flóðunum í suðvesturhluta Þýskalands.
Mikið tjón varð af flóðunum í suðvesturhluta Þýskalands.
Hin miklu flóð sem orðið hafa í suðvesturhluta Þýskalands stöðvuðu bílaframleiðslu tímabundið í verksmiðju Audi í Neckarsulm. Þar eru framleiddir bílarnir Audi A4, A5, A6, A7 og A8, auk sportbílsins R8 og RS bílar Audi. Hlutar af verksmiðju Audi í Neckarsulm voru umflotnir vatni á sunnudaginn og fyrri hluta mánudags.

Framleiðslutap í verksmiðjunni er ekki ljóst en þar eru framleiddir um 1.300 bílar á dag. Í verksmiðjunni vinna 16.000 starfsmenn og í henni voru framleiddir alls 272.103 bílar í fyrra. Nú er framleiðsla í verksmiðjunni aftur komin af stað. Fjögur dauðsföll urðu í suðvesturhluta Þýskalands af völdum flóðanna um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×