Heilsa

Fjórir ódýrir prótíngjafar

Rikka skrifar
visir/getty
Prótín er lífsnauðsynlegt næringarefni sem að við þurfum til að halda uppi heilbrigðum líkama. Það er aðaluppbyggingarefni líkamans og þar á meðal byggir það upp vöðvana. Flestir sem stunda líkamsrækt af einhverju ráði hafa nú örugglega fengið sér einn eða tvo prótínsjeika í gegnum ævina eða eiga einn góðan plastdunk í eldhúsinu fullan af prótíni í duftformi.  Fæðutegundir sem að við neytum dagsdaglega eru misríkar af prótíni en eftirfarandi tegundir eru einstaklega prótínríkar og eiga það einnig sameiginlegt að særa ekki seðlaveskið.

Skyr

Íslenska skyrið er stútfullt af prótíni. Eini ókosturinn við það er hversu mikið af sykri er stundum skellt saman við það. Veldu hreint skyr og blandaðu frekar ferskum ávöxtum saman við það.

Egg

Egg er orkugjafi og í raun fullt hús matar. Þau eru líka hægt að matreiða á marga mismundi vegu og eru oft undirstaðan í mörgum uppskriftum. Egg eru frábær fæðugjafi fyrir prótín og inniheldur í réttum hlutföllum allar nauðsynlegar amínósýrur.Auk prótíns eru egg stútfull af öðrum næringarefnum svosem B-vítamínum, kólín og seleníum.

Túnfiskur

Niðursoðinn túnfiskur í vatni er alveg frábær prótíngjafi og ríkur af Omega fitusýrum sem heldur taugakerfi líkamanns í jafnvægi. Ekki veitir af á þesum síðustu og verstu.

Hnetusmjör

Hreint og náttúrulegt hnetusmjör er frábær prótín og fitugjafi. Gæta þarf þess að velja gott hnetusmjör sem er ekki stútfullt af óþarfa olíum og sykri. Það er náttúrulega allra best að búa til sitt eigið hnetusmjör.


Tengdar fréttir

10 leiðir að hollari eldamennsku

Með því að tileinka þér eftirfarandi einföld og fljótleg ráð getur þú gert mataræðið örlítið hollara en það er fyrir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×