Innlent

Fjórir handteknir vegna hnífsstungu á Hverfisgötu

Bjarki Ármannsson skrifar
Frá vettvangi.
Frá vettvangi. Mynd/Þorgeir Ólafsson
Fjórir menn voru handteknir á Hverfisgötu í kvöld í tengslum við hnífstungu. Sá særði hefur verið fluttur á spítala og er í aðgerð. Ekki er hægt að upplýsa um líðan hans fyrr en að henni lokinni. 

Fulltrúi lögreglu segir rannsókn málsins enn á frumstigi og því ekki hægt að upplýsa hvort fleiri sé leitað í tengslum við árásina. Ekki er heldur vitað hvort hún tengist skipulagðri glæpastarfsemi eður ei.

Frá vettvangi.Mynd/Þorgeir Ólafsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×