Lífið

Fjölmenni á vel heppnuðu Þorrablóti Skagamanna

Stefán Árni Pálsson skrifar
Auddi og Steindi voru veislustjórar.
Auddi og Steindi voru veislustjórar. myndir/heida HB
Skagamenn skemmtu sér frábærlega á laugardagskvöld, en þá var þorrinn blótaður á Akranesi. Auðunn Blöndal og Steindi stýrðu gleðinni og náðu frá fyrstu mínútu upp frábærri stemmningu sem hélst langt fram eftir nóttu.

Uppselt var eins og undanfarin ár á þennan vinsæla viðburð og var svipað uppi á teningnum nú en um 700 manns voru á staðnum. Matur var framreiddur af veitingahúsinu Galito á Akranesi og var mikil ánægja með hann eins og fyrri ár.

Skagamaður ársins sem valin af Akraneskaupstað var að þessu sinni Dýrfinna Torfadóttir en hefur um árabil verið einn dyggasti stuðningsmaður kvennaknattspyrnunnar á Akranesi og stutt stelpurnar með margvíslegum hætti. Hún hefur  eflt tengsl listamanna og knattspyrnunnar, með því að færa besta leikmanni hvers leiks í efstu deild karla og kvenna, verk eftir listafólk af Skaganum.

Ágústa Eva Erlendsdóttir var með stórkostlegt tónlistaratriði og naut stuðnings hljómsveitarinnar Bandmenn sem sáu um ballið fram eftir nóttu.  Selma Björnsdóttir og Regína Ósk Óskarsdóttir stútfylltu dansgólfið og með Eurovision laga þema.

Árgangur ´76 sá um Skagaskaupið sem er annáll síðasta árs fyrir Akranes.  Áhugasamir geta kynnt sér nánar meðfylgjandi myndband. 

Þorrablót Skagamanna er haldið af árgangi ´71 á Akranesi en allur hagnaður blótsins rennur til Björgunarsveitarinnar og íþróttafélaga en golf, knattspyrna, sundi, fimleikar og íþróttafélag fatlaðra fá greitt í samræmi við vinnuframlag þeirra á blótinu.

Ljósmyndari Þorrablótsins var Heida HB hjá Heida HB photography en myndir má sjá í myndaalbúminu hér fyrir neðan.

myndir/heida HB





Fleiri fréttir

Sjá meira


×