Innlent

Fjöldi slasaðra: Gera ráð fyrir að nýta 10 bíla til sjúkraflutninga

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Það er napurt á vettvangi.
Það er napurt á vettvangi. Vísir/vilhelm
Rútan sem fór út Þingvallavegi við Skálafellsafleggjarannn liggur á hliðinni og hafa sjúkraflutningamenn þurft að beita klippum til að ná tveimur farþegum úr flakinu. Talið er að um fimm til sjö séu alvarlega slasaðir.

Búið er að klippa annan úr bílnum og unnið er að því að ná hinum úr flakinu. Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, sagði í samtali við fréttastofu að 41 farþegi hafi verið í rútunni. Þorri þeirra sem í rútunni voru eru kínverskir ferðamenn. Bílstjóri og leiðsögumaður eru íslenskir.

Sjá einnig: Rútuslys á Þingvallavegi

Rögnvaldur Ólafsson hjá Almannavörnum segir í samtali við Vísi að um 10 sjúkrabílar séu ýmist á vettvangi eða á leið þangað. Hann gerir ráð fyrir því að þurfi að nota þá alla og því séu líklega minnst 10 slasaðir.

Þó of snemmt sé að fullyrða um tildrög slyssins segir Rögnvaldur að líklegt verði að teljast að hálka hafi átt hlut að máli. Leiða megi líkur að því að ökumaður rútunnar hafi misst stjórn á bílnum í aflíðandi beygju og hafnað utan vegar.

Áfallateymi Rauða krossins er á vettvangi og „minna slasað“ fólk verður flutt í fjöldahjálparstöð. Þá eru starfsmenn á skurðstofum Landspítalans í viðbragðsstöðu vegna slyssins.

Uppfært: 11:45

Lögreglan vill biðja alla þá sem tóku upp farþega eða slasaða á slysavettvangi að láta strax vita svo að hægt sé að tryggja að allir farþegar í rútunni séu fundnir. Hægt er að láta vita gegnum 112 eða björgunaraðila á vettvangi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×