Íslenski boltinn

Fjöldi beinna útsendinga úr 27 í 72: Stjarnan oftast í beinni

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Stjarnan og FH voru samtals 33 sinnum í beinni í sumar.
Stjarnan og FH voru samtals 33 sinnum í beinni í sumar. vísir/ernir
Pepsi-deild karla í fótbolta lýkur á morgun þegar lokaumferðin fer fram. FH er nú þegar orðið Íslandsmeistari en hart er barist um Evrópusæti og við botninn þar sem þrjú lið geta enn þá fallið.

Stöð 2 Sport bætir eigið met frá því í síðustu umferð þegar þrír leikir voru í beinni á sama tíma, en fjórir leikir verða í beinni útsendingu á sama tíma í lokaumferðinni.

Stórar útsendingar verða í Krikanum, þar sem FH mætir ÍBV og tekur á móti nýjum Íslandsbikar, og í Frostaskjóli þar sem KR mætir Fylki í leik sem mun hafa mikil áhrif á Evrópu- og fallbaráttuna.

Minni útsendingar (með einni myndavél) verða í Kópavogi þar sem Breiðablik og Fjölnir berjast um Evrópusæti og í Garðabæ þar sem Stjarnan tekur á móti Ólsurum. Stjarnan er í góðum Evrópuséns en Ólsarar geta fallið.

Beinu útsendingarnar á morgun verða númer 69, 70, 71 og 72 en heildarfjöldi beinna útsendinga Stöðvar 2 Sports frá Pepsi-deild karla endar í 72 eftir morgundaginn.

Þar af er um að ræða 50 stórar útsendingar en þær voru 26 á síðasta tímabili. Þá var Stöð 2 Sport með 22 minni útsendingar í sumar en aðeins ein svoleiðis var í fyrra og aukningin á þeirri þjónustu því mikil.

Leikir Vals og KR voru báðir í beinni.vísir/hanna
Stjarnan oftast í beinni

Heildarfjöldi útsendinga var 27 í fyrra en endar í 72 núna sem fer langt með að vera þreföldun á fjölda beinna útsendinga.

Maraþon útsending verður frá Pepsi-deild karla á morgun. Upphitun fyrir lokaumferðina hefst klukkan 13.30 áður en fjórir leikir verða svo í beinni. Lokaþáttur Pepsi-markanna hefst klukkan 17.00 og verður til 20.00. Hann verður í opinni dagskrá og í beinni á Vísi.

Stjarnan var oftast í beinni í sumar eða 17 sinnum. Garðbæingar fengu flestar stórar útsendingar eða fimmtán. FH og KR voru næst oftast í beinni eða 16 sinnum hvort lið. KR var þó oftar í stórum útsendingum eða þrettán sinnum. Blikar komu þar næst með ellefu (þrettán í heildina) eins og FH.

Fjöldi beinni útsendinga frá Pepsi-deild karla í sumar:

Stjarnan 17

FH 16

KR 16

Breiðablik 13

ÍBV 13

Valur 12

Fylkir 11

Víkingur Ó. 10

Víkingur 10

Fjölnir 9

ÍA 9

Þróttur 8

Heildarfjöldi: 72

Í fyrra: 27

Fjöldi stórra beinna útsendinga frá Pepsi-deild karla í sumar:

Stjarnan 15

KR 13

Breiðablik 11

FH 11

Valur 10

Víkingur 10

Fjölnir 8

ÍA 6

Fylkir 6

Víkingur Ó. 4

ÍBV 3

Þróttur 3

Heildarfjöldi: 50

Í fyrra: 26




Fleiri fréttir

Sjá meira


×