Lífið

Fjögurra ára strákur með krabbamein skrifar hjartnæmt ástarbréf

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ástarbréf sem hinn fjögurra ára Bennet Skinner skrifaði til vinkonu sinnar er búinn að gera allt vitlaust á vefsíðunni Reddit en bréfið er afar hjartnæmt.

„Viltu vinsamlegast koma heim til mín? Við getum leikið saman. Mér finnst þú vera falleg eins og hestur eða maríubjalla. Ég er ekki viss um hvort. Þú ættir að koma heim til mín og borða ost með mér. Ég elska þig og ég missti tönn í gærkvöldi. Ég held að ég vilji gera töfrabragð fyrir þig og síðan leyfa þér að horfa á mig berjast við vélmenni,“ stendur í bréfinu.

Móðir stráksins, Jennifer Skinner, segir í viðtali við Today að sonur sinn hafi greinst með krabbamein fyrir sex mánuðum síðan en fjölskyldan vonast til þess að læknar segi þeim innan skamms að hann sé laus við meinið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×