Lífið

Fjögurra ára gamalt árshátíðarmyndband Icelandair vekur athygli

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Flugstjórinn vaknar með smokk á milli tánna.
Flugstjórinn vaknar með smokk á milli tánna. Skjáskot úr myndbandinu.
Fjögurra ára gamalt myndband sem gert var í tilefni árshátíðar Icelandair árið 2011 hefur skotist upp á stjörnuhimininn á nýjan leik. Á Facebook-síðunni The Aviation Hub, sem birtir reglulega myndbönd tengd flugi, hefur myndbandið fengið yfir 200 þúsund áhorf á rúmri viku.

Heimir Helgason, Pétur Lentz og Snorri Bjarnvin Jónsson gerðu myndbandið en í því leikur Björn Ingi Hafliðason flugstjóra sem er ekki allur sem hann er séður. Utan vallar virðist hann spila sig sem flugstjóra en er þó í öðru hlutverki í flugvélinni sjálfri þegar allt kemur til alls.

Myndbandið er spaugilegt en undir hljómar karókí útgáfa af Eurovision-laginu „This is my life.“ Að neðan má sjá myndbandi og einnig myndband með gerð myndbandsins.

185 þúsund hafa horft á myndbandið á YouTube sem ber titilinn Captain Gorgeous.

Uppfært: Myndbandið hefur verið fjarlægt af YouTube en það má þó sjá hér að neðan.

Captain Gorgeous !! (Funny Shortfilm)

Captain Gorgeous !! (Funny Shortfilm from Snorri Bjarnvin Jónsson )This is the Icelandair Crew Annual Ball Video. The song is "This is my life" (kareoki version) by the Euroband from 2008 Eurovision song contest.The leading role is played by an actual Captain.Copyright to : https://www.youtube.com/channel/UC9z6V6wWl1sRKfp7PZqvp9Q

Posted by The Aviation Hub on Tuesday, April 14, 2015





Fleiri fréttir

Sjá meira


×