Lífið

Fjallið komið með nýja kærustu

Jakob Bjarnar skrifar
Eins og sjá má er stærðarmunurinn á þeim Kelsey Henson og Fjallinu gríðarlegur.
Eins og sjá má er stærðarmunurinn á þeim Kelsey Henson og Fjallinu gríðarlegur.
Kraftajötuninn Hafþór Júlíus Björnsson, sem alla jafna gengur undir nafninu Fjallið, er kominn með nýja kærustu uppá arminn. Hún heitir Kelsey Henson og er frá Kanada.

Það er TMZ sem greinir frá þessu en sá vefur helgar sig umfjöllun um hina frægu og ríku. Og þau þar telja að heldur betur hafi hlaupið á snærið hjá Fjallinu, Henson sé augnayndi en óneitanlega smávaxin, ekki síst í samanburði við tröllið. Hún er 1,58 metrar á hæð en Hafþór Júlíus er 2,06 metrar þannig að munurinn er umtalsverður.

TMZ greinir frá tilurð kynna þeirra sem var á bar á Earls Kitchen + Bar í borginni Alberta í Kanada. Þar starfar Kelsey en Fjallið var í bænum vegna keppninnar Strongman. Kelsey bað Fjallið um að vera með sér á mynd og í kjölfarið tókust kynni með þeim tveimur hjónaleysunum. Þau hafa farið saman um heim allan; til Spánar, Kýpur og Íslands. TMZ talar um að þau séu í fjarbúð en til standi að hún heimsæki hann nú í janúar.

Á ýmsu hefur gengið í kvennamálum kraftamannsins en hann hefur verið sakaður um að beita sambýliskonur sínar ofbeldi, og var þetta mjög til umfjöllunar í sumar. Sjálfur hefur hann alfarið vísað þeim ásökunum á bug.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×