Lífið

Fjallið auglýsir vodka í sprenghlægilegri auglýsingu

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Hafþór hefur tekið þátt í kynningu á Icelandic Mountain Vodka.
Hafþór hefur tekið þátt í kynningu á Icelandic Mountain Vodka. Vísir
Hafþór Júlíus Björnsson sem leikur Ser Gregor Clegane eða Fjallið í Game of Thrones þáttunum leikur í nýjum auglýsingum fyrir nýtt íslenskt áfengisfyrirtæki sem ber nafnið Icelandic Mountain Spirits.

Fyrsta varan á markað hjá þeim heitir Icelandic Mountain Vodka og Fjallið birtist í nýrri auglýsingu sem kynnir vöruna. Fullyrt er að íslenskt vatn sé notað við framleiðsluna.

Auglýsingin er mjög skemmtileg og er sett upp sem venjulegur dagur í lífi Hafþórs.

Hana má sjá hér fyrir neðan.

Fánalög ekki brotin

Á heimasíðu fyrirtækisins má sjá að von er á þremur öðrum áfengistegundum innan skamms. Það eru Icelandic Mountain Shots eða skot sem kallast Drekinn. Icelandic Mountain Gin sem kallast Örninn og Icelandic Mountain Rum sem kallast Nautið. Viðurnefni Vodkans er einfaldlega Fjallið. Þetta eiga að vera tilvísanir í íslensku vættina en samkvæmt því ætti Hafþór þá að vera risinn.

Uppfært 23:10

Aftan á vodkaflöskunni er mynd af Hafþóri en framan á henni má sjá íslenska fánann í allri sinni dýrð. Í eldri útgáfu fánalaganna hefði fyrirtækið þurft að fá leyfi frá forsætisráðaneytinu til þessa. Lögunum var breytt í apríl á þessu ári á þann veg að eins lengi og varan er framleidd hér á landi þá er löglegt að nota íslenska fánann á henni.

Í eldri útgáfu af þessari frétt var vitnað í gömlu fánalögin og þeirri spurningu kastað fram hvort um brot væri að ræða en svo er ekki samkvæmt nýju lögunum. Við biðjumst velvirðingar á þeim mistökum, enda viljum við síður reita Fjallið til reiði.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×