Heilsa

Fjallaskíðin í hávegum höfð á Siglufirði

Rikka skrifar
Valtýr Sigurðsson, Helgi Jóhannesson og Tómas Guðbjartsson
Valtýr Sigurðsson, Helgi Jóhannesson og Tómas Guðbjartsson visir/jón steinar ragnarsson
Fjallaskíðamótið Super Troll Ski Race 2015 fór fram á Siglufirði um liðna helgi. Aðstæður voru hinar allra bestu og skein sólin á glaðleg andlit keppenda og áhorfenda. Þetta er í annað sinn sem keppnin er haldin og voru rúmlega þrjátíu einstaklingar sem tóku þátt þetta árið. Fjallaskíðaíþróttin nýtur sífellt meiri vinsælda enda ekki að furða þar sem hún veitir þeim sem hana stunda mikið frelsi á fjöllum.

Dagskrá mótsins hófst með hátíðarmorgunverði á Kaffi Rauðku þar sem keppendur og aðstandendur mótsins hlóðu batteríin fyrir átök dagsins. Björgunarsveitin Strákar frá Siglufirði keyrði svo keppendum inn í Fljót að morgunverði loknum þar sem mótið var ræst. Gengið var yfir Siglufjarðarskarð og svo skíðað niður.

Um kvöldið var svo haldin verðlaunahafending og kvöldverður en þangað mættu meira en hundrað manns. Mikil ánægja var með mótið meðal keppenda og aðstandenda. Glæsileg verðlaun voru í boði fyrir efstu þrjú sætin, sæti 2.-3. fengu útbúnað frá Fjallakofanum og verðlaun í boði Kaffi Rauðku en sigurvegarar í hverjum flokki unnu sér inn stórglæsilega þyrluskíðun í boði Eleven Experience.  Verndari mótsins var hinn góðkunni Tómas Guðbjörnsson læknir og fjallageit.

Úrslitin fóru sem hér segir:



Karlaflokkur

1. Stefán Guðmundsson

2. Einar Rúnar Sigurðsson

3. Stefán Ákason

Kvennaflokkur

1. Elín Marta Eiríksdóttir

2. Jóhanna Hlín Auðunsdóttir

3. Áslaug Bríem


Tengdar fréttir

Enginn hefur hlaupið Laugaveginn jafnhratt

Elísabet Margeirsdóttir hittir afrekshlaupara sem undirbúa sig undir erfitt mót í Frakklandi, fer yfir það helsta sem þarf af búnaði fyrir fjallaskíðin og hittir sigurvegara Enduro fjallahjólamótsins.

Fjallaskíðin koma þér lengra og hærra

Fjöllin geta verið varhugaverð og að ýmsu að huga, til að mynda hvernig á að haga sér ef að þú lendir í snjóflóði, hvaða búnað þarftu að hafa með þér til þess að tryggja öryggið þitt og hvernig lestu í umhverfið þitt.








×