Íslenski boltinn

Finnur Orri mun ganga í raðir FH

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Finnur Orri Margeirsson hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Breiðablik.
Finnur Orri Margeirsson hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Breiðablik. vísir/daníel
Finnur Orri Margeirsson, fyrirliði Breiðabliks í Pepsi-deild karla í knattspyrnu, er búinn að samþykkja tilboð frá FH, samkvæmt heimildum Vísis.

Finnur Orri, sem gaf það út í gær að hann ætlaði að yfirgefa uppeldisfélagið sitt, var einnig eftirsóttur af KR, en hann valdi að ganga í raðir Hafnafjarðarliðsins.

Þessi 23 ára gamli miðjumaður hefur verið fastamaður í liði Breiðabliks frá því 2008, en hann á að baki 163 leiki í deild og bikar fyrir Blika.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×