Innlent

Fimmtán til tuttugu stig á Norðausturlandi

Bjarki Ármannsson skrifar
Hitaspáin fyrir klukkan þrjú í dag.
Hitaspáin fyrir klukkan þrjú í dag. Mynd/Veðurstofa Íslands
Hiti verður víða fimmtán til tuttugu stig norðaustantil á landinu í dag og á morgun og veður þar léttskýjað og úrkomulítið. Norðvestan og vestanlands verður hins vegar hvasst veður, tíu til átján metrar á sekúndu, og talsverð úrkoma en hiti sjö til þrettán stig.

Veðurstofa hvetur vegfarendur áfram til að gæta varúðar og sýna aðgát við vatnsföll þar sem rennsli í ám hefur aukist að undanförnu vegna leysinga og verður áframhald á því næstu daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×