Íslenski boltinn

Fimm Pepsi-deildarlið komin áfram í bikarnum | Úrslit kvöldsins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þróttur vann góðan sigur í kvöld.
Þróttur vann góðan sigur í kvöld. Vísir/Vilhelm
Pepsi-deildarliðin ÍBV, ÍA, Þróttur R., Fylkir og Víkingur R. tryggðu sér öll í kvöld sæti í sextán liða úrslitum Borgunarbikarsins en KR-ingar þurftu að fara í framlengingu á móti Selfossi.

1. deildarlið Grindavíkur og 3. deildarliði Víðis unnu líka sína leiki í uppgjöri neðri deildarliða en Grindavík sló út KA-menn sem tókst þar með ekki að fylgja eftir bikarævintýri sínu frá því í fyrra.

Skagamenn, Eyjamenn og Þróttarar rifu sig upp eftir tapleiki í síðustu umferð Pepsi-deildarinnar og unnu góða bikarsigra í kvöld. Þróttarar skoruðu meðal annars þrjú mörk á móti Völsungum í Laugardalnum.

Fylkismenn fögnuðu líka fyrsta sigri sumarsins er þeir unnu 1. deildarlið Keflavíkur en Fylkisliðið náði aðeins í eitt stig í fyrstu fimm umferðum Pepsi-deildarinnar.



Úrslit og markaskorarar í 32 liða úrslitum Borgunarbikars karla í kvöld:

Grindavík - KA    1-0

1-0 Björn Berg Bryde (45.)

    

ÍBV - Huginn    2-0

1-0 Charles Vernam (47.), 2-0 Bjarni Gunnarsson, víti (81.)

    

Víðir - Sindri    2-0     

1-0 Helgi Þór Jónsson (104.), 2-0 Aleksandar Stojkovic (120.)

ÍA - KV    1-0    

1-0 Þórður Þorsteinn Þórðarson (4.)

KR - Selfoss    1-1    (framlengt)

1-0 Denis Fazlagic (60.), 1-1 James Mack (72.).

Þróttur R. - Völsungur    3-1    

1-0 Brynjar Jónasson (10.), 2-0 Brynjar Jónasson (61.), 3-0 Dean Lance Morgan Plues (67.), 3-1 Eyþór Traustason (75.).

Keflavík - Fylkir    1-2    

0-1 Ragnar Bragi Sveinsson (37.), 0-2 Víðir Þorvarðarson (40.), 1-2 Magnús Sverrir Þorsteinsson, víti (90.+1).

Haukar - Víkingur R.    1-2

0-1  Óttar Magnús Karlsson (20.), 0-2  Óttar Magnús Karlsson (31.), 1-2     Aron Jóhannsson (88.).

Upplýsingar um markaskorara eru meðal annars fengnar frá ksi.is, fótbolti.net og úrslit.net.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×