Lífið

Fetar í fótspor Kim: Ásdís Rán birtir mynd af sér á nærbuxunum

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Hér eru þær stöllurnar, Kim og Ásdís Rán.
Hér eru þær stöllurnar, Kim og Ásdís Rán.
Ísdrottningin og athafnakonan Ásdís Rán hefur opnað nýja heimasíðu, Icequeen.is.



„Ég er búin að vera eitthvað að dúltla mér í henni í nokkra mánuði, ákvað að skella í opnun í dag,“ segir Ásdís hress.

Fyrsta færslan er frá því í gær og munu lesendur hennar eiga kost á því að fræðast meira um daglegt líf Ásdísar auk þess að finna þar ýmis góð ráð. „Ég ætla að færa megin bloggið mitt yfir á síðuna og vera með „beauty tips“, heilsupistla, fréttir og myndir úr mínu daglega lífi, úr myndatökum og behind the scenes og kannski búa til vídjó með ráðleggingum.“

Nútíminn greindi fyrst frá málinu.

Að sjálfsögðu mun fólk einnig koma til með að sjá eldheitar sjálfsmyndir í Hollywood stíl. Sú fyrsta fylgdi með færslunni í gær en þar lék Ásdís eftir bossamynd sem Kim Kardashian birti af sér fyrir skemmstu til að halda upp á þann áfanga að ná 27 milljónum fylgjenda á Instagram. „Stór hluti af mínum aðdáendum eru erlendir og vilja sjá það sama og er á síðum hjá öðrum stjörnum, ég verð líka að bjóða upp á það,“ segir Ásdís og er ánægð með viðtökurnar sem myndin og síðan hefur fengið. „Þetta er allavega að detta í að vera mest lesið núna og einhverjar þúsundir búnar að skoða þetta,“ segir hún glöð í bragði að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×