Heilsa

Ferskari húð með kælandi gúrkumaska

Ragnheiður Guðmundsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Gúrkan og aloe vera gelið hafa kælandi áhrif á húðina og þessi maski er alveg frábær til þess að fríska upp á þreytta húð. Hann virkar vel á bauga og þrota undir augum og er tilvalinn eftir lítinn svefn eða annað álag sem hefur áhrif á útlitið.

Það sem þarf í maskann:

1 gúrka

2 matskeiðar lífræn kókosolía

1/4 bolli aloe vera gel

Leiðbeiningar:

Blandið hráefnunum saman í blandara. Helltu í bolla því sem þú ætlar að nota strax og settu inn í ískáp í 10 mínútur. Helltu afgangnum í klakabox og inn í frysti. Þá áttu tilbúinn maska í hvert skipti þér finnst andlitið þurfa á smá hressingu að halda.

Berðu maskann á allt andlitið og hafðu á í 15 mínútur. Gott er að leggjast niður og slaka á meðan maskinn er á. Þrífðu hann af með volgu vatni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×