Innlent

Ferðamenn neituðu að borga fyrir matinn á veitingastað í Hafnarfirði

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ferðamennirnir greiddu að lokum reikninginn en munu hafa verið ósáttir við skammtastærðirnar, það er að segja þeir vildu meira að borða.
Ferðamennirnir greiddu að lokum reikninginn en munu hafa verið ósáttir við skammtastærðirnar, það er að segja þeir vildu meira að borða. Vísir/Daníel
Um klukkan hálftíu í gærkvöldi óskuðu starfsmenn veitingastaðar í Hafnarfirði eftir aðstoð lögreglu þar sem átta erlendir ferðamenn neituðu að greiða fyrir mat og drykk. Þeir greiddu að lokum reikninginn en munu hafa verið ósáttir við skammtastærðirnar, það er að segja þeir vildu meira að borða.

Rétt fyrir hálfsex í gær tilkynnti 9 ára gamall strákur að 8 ára gamall strákur hefði hlaupið á eftir sér ógnandi og með hníf. Rætt var við drengina og foreldra þeirra auk þess sem barnavernd verður sett í málið að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni.

Um klukkan hálfsjö var síðan tilkynnt um slys í grunni nýbyggingar í Kópavogi. Þar hafði 10 ára strákur dottið og var talið að hann væri fótbrotinn.

Rúmlega ellefu í gærkvöldi var tilkynnt um að karlmaður hefði ekki skilað sér til baka eftir gönguferð á Esjuna. Maðurinn hafði orðið viðskila við félaga sinn í myrkrinu og voru björgunarsveitir ræstar út sem fundu manninn nokkru síðar. Maðurinn var aðeins orðinn kaldur en hann var illa búinn til göngu.

Þá voru fjögur umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu í gær og einn var stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum. Auk þess hafði lögreglan afskipti af ökumanni sem var sviptur ökuréttindum en við leit í bíl hans fannst sverð sem var haldlagt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×