Innlent

Félagsdómur úrskurðar um útflutningsbann í álverinu

Heimir Már Pétursson skrifar
Ál bíður uppskipunar í Straumsvík.
Ál bíður uppskipunar í Straumsvík. vísir/gva
Félagsdómur kom saman í dag til að úrskurða í kæru Samtaka atvinnulífsins fyrir hönd álversins í Straumsvík vegna boðaðs útflutningsbanns starfsmanna í álverinu sem á að hefjast á miðnætti.

Upplýsingafulltrúi Rio Tinto Alcan á Íslandi sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar að það hefði alvarlegar afleiðingar fyrir álverið ef því yrði meinað að flytja út afurðir sínar.

Viðskiptavinir fyrirtækisins væru nú þegar uggandi um hvort þeir geti fengið sínar pantanir uppfylltar eða ekki. Þá hefði fyrirtækið tapað tugum þúsunda tonna af pöntunum á síðasta ári þegar verkfall vofði yfir. Aðgerðir verkalýðsfélaganna hefðu þess vegna  valdið fyrirtækinu miklu tjóni.

Deilan í álverinu hefur staðið mánuðum saman og snýst um kröfu fyrirtækisins um að fá að útvista fleiri störfum hjá álverinu en nú þegar er heimilt samkvæmt samningum en verkalýðsfélögin leggjast alfarið gegn því.

Um fjögur þúsund tonn af áli eru flutt út frá Straumsvík í viku hverri og nú er skip við höfnina þar sem bíður lestunar. Næsti fundur í deilunni er hjá Ríkissáttasemjara á morgun.


Tengdar fréttir

ISAL kannar lögmæti aðgerða

Boðaður hefur verið fundur í kjaradeilu starfsmanna ISAL og álversins næsta miðvikudag. Sama dag hefst útflutningsbann á áli úr Straumsvík. Aðgerðir sem koma á óvart, segir talsmaður álversins.

Álverið hefur nú þegar skaðast af aðgerðum

Ólafur Teitur Guðnason segir kaupendur áls frá álverinu í Straumsvík hafa áhyggjur af stöðunni. Félagsdómur kemur saman seinnipartinn í dag vegna deilunnar.

Álversdeilan: Aldrei kynnst annarri eins hörku

Talsmaður starfsanna í álverinu í Straumsvík segir fyrirtækið vera í einkennilegum skollaleik. Ef útflutningsbann verði dæmt ólöglegt verði boðað til nýrra aðgerða.

Pína á álverið að samningaborðinu

Engin viðbrögð hafa enn komið frá ÍSAL. Starfsmenn eru komnir með upp í kok. Fundur í deilunni hjá ríkissáttasemjara er í undirbúningi. Boðun aðgerða í næstu viku endurspegla snúna stöðu í deilunni, segir framkvæmdastjóri SA.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×