Lífið

Fékk Tupac-samfellu fyrir stúlkuna

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Fyrrverandi Playboy-kanínan Kendra Wilkinson hélt barnaveislu um helgina í tilefni af því að stutt er í að hennar annað barn, lítil stúlka, komi í heiminn.

Kendra fékk margar góðar gjafir, þar á meðal samfellu með mynd af rapparanum sáluga Tupac Shakur.

Stjanað var við gesti veislunnar og fengu þeir nudd frá Manly Handz og gátu valið sér sælgæti á sérstöku sælgætishlaðborði frá Candy Me Up.

Kendra er gift Hank Baskett og eiga þau fyrir soninn Hank Jr., fjögurra ára. Kendra var himinlifandi með veisluna.

„Ég sagði öllum að sleppa því að gefa mér gjafir. Ég fékk samt æðislegar gjafir og mikið af gríngjöfum. Allir voru fullir! Þetta var mjög gaman að koma saman með vinum á vordegi. Ég er glöð að hafa gert þetta.“

Í skýjunum.
Nóg af gjöfum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×