Fótbolti

Fékk fyrirsætusamning eftir að hafa verið mynduð á HM

Axelle er hér í banastuði á HM.
Axelle er hér í banastuði á HM. vísir/getty
Kvikmyndatökumenn og ljósmyndarar á íþróttaleikjum eru oft duglegir að mynda sætar stelpur í stúkunni og það opnaði heldur betur margar dyr fyrir belgísku stúlkuna Axelle Despiegelaere.

Ljósmyndarar á HM í Brasilíu voru mjög duglegir að mynda þessa 17 ára stúlku og hafa myndir af henni birst á vefsíðum og í blöðum um allan heim.

Svo fræg varð hún að um leið og hún kom heim var hún bókuð í sjónvarpsviðtöl í landinu.

Í kjölfarið fékk hún samning hjá snyrtivörurisanum L'Oreal og mun hún verða fyrirsæta hjá því fyrirtæki. Það getur því greinilega margborgað sig að fara á HM.

Axelle og vinkona hennar. Sú fékk ekki neinn fyrirsætusamning.vísir/getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×