Glamour

Feimin stjórstjarna uppgötvuð í neðanjarðarlest

Ritstjórn skrifar
FKA TWIGS
FKA TWIGS Glamour/Patrick Demarchelier
FKA Twigs kom eins og stormsveipur inn í tónlistarheiminn í fyrra. Henni er gjarnan líkt við okkar eigin Björk, Lykke Li og jafnvel Prince, með vísan í einstakan stíl Twigs í tónlist og sviðsframkomu. Glamour kynnti sér dansarann sem var uppgötvuð í neðanjarðalest og stefndi alltaf á frægð og frama.

„Ég virðist höfða til fólks sem vill eitthvað öðruvísi,“ er haft eftir Tahliah Debrett Barnett, betur þekktri sem FKA Twigs í nýlegu viðtali við The Guardian.

„En heimsbyggðin, allur heimurinn, kann ekki að meta það sem er öðruvísi. Ekki ef maður horfir á heildina.“



FKA Twigs ásamt Robert Pattinson
FKA Twigs er í sambandi með leikaranum Robert Pattinson, þau hafa reynt af fremsta megni að forðast kastljós fjölmiðla.

Prófíl um Twigs er að finna í fyrsta tölublaði Glamour, með ljósmyndum eftir hinn heimsþekkta Patrick Demarchelier.

Hægt er að kaupa áskrift af Glamour hér.






×