Heilsa

Fegurðardísir fögnuðu nýrri íslenskri andlitslínu

Rikka skrifar
visir/valli
Fjöldi fegurðardísa var saman kominn á Sóley Natura Spa til þess að fagna nýútkominni andlitslínu hins íslenska snyrtivörumerkis Sóley Organics. Andlitslínan er ætluð konum um miðjan aldur er framleidd úr náttúrulegum jurtum sem týndar eru meðal annars af framleiðandanum sjálfum, Sóleyju Elíasdóttur. 

Þrjár glæsilegar konur eru andlit nýju húðlínunnar. Tristan Gribbin er danshugleiðslukennari, Guðbjörg Gissurardóttir er ritstýra og eigandi tímaritsins Í boði náttúrunnar, og Unnur Valdís Kristjánsdóttir hönnuður hefur vakið mikla athygli fyrir Float-vörulína sína sem býður upp á fljótandi djúpslökun í vatni. Allar eiga það sameiginlegt að hafa tileinkað sér heilsusamlegan lífsstíl, hugsa vel um líkama og sál, velja lífrænt og vera meðvitaðar um umhverfisvernd. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×