Glamour

Fatastíll Celine Dion vekur verðskuldaða athygli

Ritstjórn skrifar
Söngkonan glæsilega kom fram á tónleikum á dögunum í pallíettu dragt. Það gerist varla meira töff en það.
Söngkonan glæsilega kom fram á tónleikum á dögunum í pallíettu dragt. Það gerist varla meira töff en það.
Það hefur ekki farið framhjá neinum tískuáhugamanni að á seinustu misserum hefur söngkonan Celine Dion verið að klæða sig óaðfinnanlega. Ástæðan fyrir því er að hún réð til sín nýjan stílista í byrjun sumars en sá heitir Law Roach. Hann var á dögunum ráðinn sem einn af nýjum dómurunum í næstu America's Next Top Model seríu. 

Celine hefur verið að koma víðsvegar fram og að taka upp ný tónlistarmyndbönd. Það er greinilegt að hún hafi verið tilbúin fyrir breytingar í fataskápnum en hingað til hefur hún verið að klæðast hefðbundnari fötum. Núna er hún óhrædd við að rokka leður síðkjól og pallíettu jakkaföt. 

Þrátt fyrir að hafa gengið í gegnum gríðarlega erfiða tíma fyrr á árinu þar sem hún missti bæði eiginmann sinn og bróður með tveggja daga millibili þá lítur hún út fyrir að vera að komast aftur á skrið. Það verður spennandi að fylgjast með henni á næstu mánuðum. 

Sumarlegt og flott dress sem er heldur betur líflegt miðað við gamla fatastílinn hennar Celine.
Stór munstur og skærir litir eru greinilega í uppáhaldi hjá Law Roach og Celine.
Celine fór ekki framhjá neinum þegar hún mætti á Dior sýninguna í París fyrr í mánuðinum.
Í stuttum glimmerkjól að sýna flottu fæturna sína hjá Jimmy Fallon á dögunum.
Á Giambattista Valli sýningunni í París fyrr í mánuðinum. Fallegur kjóll við fallega kápu.
Leður síðkjóll, hver gæti látið það virka jafn vel og sjálf Celine Dion?





×