Fárviðrið náði ofsa þriðja stigs fellibyls Kristján Már Unnarsson skrifar 8. desember 2015 18:15
Fárviðrið náði veðurofsa fellibyls á nærri fimmtíu veðurstöðvum víða um land í gærkvöldi og í nótt. Fellibyljir hitabeltisins eru þó eðlisólíkir óveðurslægðinni og því telst hún ekki vera fellibylur. Vindhraði fyrsta stigs fellibyls, eða fárviðri yfir 33 metrar á sekúndu í tíu mínútur samfellt, mældist á 44 veðurstöðvum í gær og í nótt; í byggð meðal annars í Vestmannaeyjum, Öræfum, undir Eyjafjöllum, í Landeyjum, á Hólmsheiði, Kjalarnesi, í Hvalfirði, Ísafjarðardjúpi, við Blönduós og á Skagatá. Fárviðrið náði ofsa annars stig fellibyls, yfir 43 metrum á sekúndu, á þremur veðurstöðum; á Þverfjalli á Vestfjörðum (47,6 m/s), á Stórhöfða (46,7 m/s) og á Skálafelli (44,1 m/s), samkvæmt tölum sem Trausti Jónsson veðurfræðingur tók saman. Met gærkvöldsins á þó Hallormsstaðaháls með 50,9 metra á sekúndu samfellt í tíu mínútur. Það er ígildi þriðja stigs fellibyls, sem er vindhraði yfir 49 metrar á sekúndu í tíu mínútur. Einstaka vindhviður slógu raunar upp í hæstu stig fellibylja. Undir Eyjafjöllum mældust vindhviður yfir 60 metrum á sekúndu og mesta vindhviða á Hallormsstaðahálsi fór 72,6 metra á sekúndu. Fjórða stig fellibyls næst við 58 metra á sekúndu í tíu mínútur samfellt. Fimmta og efsta stig næst við 70 metra á sekúndu í tíu mínútur samfellt.
Veður Tengdar fréttir Vindhraði í gær nærri meti Hámarks meðalvindhraði var 50,94 metrar á sekúndu. 8. desember 2015 10:45 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Fleiri fréttir Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Sjá meira